Þjálfun barna og unglinga hefur svipuð áhrif og þjálfun fullorðinna en þó þarf að huga að ýmsum þáttum sem þurfa að vera öðruvísi þegar kemur að því að þjálfa börn og unglinga. Framþróunarmöguleikar í æfingum eru ekki þeir sömu og hjá fullorðnum, t.d myndi maður ekki láta unglinga þjálfa hámarksstyrk, því vöðvafestingar, liðbönd og liðpoki eru viðkvæmari en hjá fullorðnum.

Þjálfun barna og unglinga gefur mjög jákvæðar niðurstöður ef vel er gert og undir eftirliti fagmanna. Þjálfunin styrkir beinmassa, sinar og liðbönd. Hún hjálpar einnig við að draga úr meiðslum og einstaklingurinn verður fljótari að jafna sig af meiðslum en ella ef þau eiga sér stað. Mikilvægt er að kenna börnum og unglingum rétta líkamsbeitingu og tækni við æfingarnar, en það er vitneskja sem þau halda alla ævi. Börn og unglingar(reyndar ekki bara) notast í síauknum mæli við tölvur og sé ég fyrir mér að eftir ekki svo mörg ár verðum við með mikil vandamál með líkamsstöðu. Upper Cross Syndrome, t.d á eftir að verða mun algengara, en það lýsir sér í framstæðum öxlum og hálsi, þ.e. einstaklingurinn verður hokinn.
Lífeðlisfræðilega eru börn og unglingar nokkuð ólík fullorðnum: hámarkssúrefnisþörf er hærri og þau svitna ekki jafn hratt. Því er líkaminn lengur að kæla sig og þola þau verr hita en fullorðnir. Börn eru einnig með minna magn glycolytic ensíma(ensím sem flýta fyrir breytingu glúkósa í orku) sem þýðir að þau hafa ekki sömu eiginleika og fullorðnir til að framkvæma æfingar í langan tíma í senn við mikið álag.
Þjálfun fyrir almenna heilsu: Æft er að minnsta kosti í 20 mínútur, þrisvar eða oftar í viku. Æfingarbreytur fyrir styrktarþjálfun ættu að vera:
- 8-10 æfingar
- 1-2 sett
- 8-12 endurtekningar
- Hvíld:60-90 sekúndur milli setta
Þjálfun fyrir íþróttir:
- Börn þola ekki mikið álag og því ætti að fara varlega í loftfirrta þjálfun og passa að hafa hana ekki lengri en sem nemur 10 sekúndum í einum spretti.
- 10 % aukning er hentug í loftháðri þjálfun, t.d ef hún er fyrir 120 mínútur á viku þá ætti ekki að auka meira en í 132 mínútur í vikunni á eftir.
- Aðalatriðin í styrktarþjálfun ættu að vera aukin hæfni og rétt tækni.
- Endurtekningar ættu að vera 15-20 til þess að auka vöðvaþol en 6-8 til þess að auka styrk.
Styrktarþjálfun barna og unglinga hefur verið mjög umdeild og eru alls ekki allir sammála um að hún geri þeim gott. En rannsóknir hafa sýnt að styrktarþjálfun hefur mikil áhrif og er örugg fyrir þennan hóp. Algengustu meiðslin hjá þessum hóp eru tognanir, en verða þær oftast vegna vöntunar á eftirliti, lélegrar tækni eða rangrar framþróunar á æfingum. Þess vegna þarf einkaþjálfarinn að passa upp á að unglingurinn/barnið noti rétta tækni við æfingarnar og framþróun á æfingum sé rétt upp sett. Það er nú kannski ekki raunhæft að það sé alltaf einkaþjálfari til staðar til að fylgjast með einstaklingnum og því er það líklega hans mikilvægasta verkefni að kenna rétta tækni og líkamsbeitingu. Einnig er stórt atriði að reyna að hafa æfingarnar sem skemmtilegastar. Það þarf líka nauðsynlega að kenna strákum sérstaklega að skilja egóið eftir heima þegar þeir fara í ræktina því þeir eiga það til að taka þyngdir sem þeir ráða ekki við og þá er mikil hætta á meiðslum. Þetta á nú reyndar við fullorðna karlmenn líka en það er efni í allt aðra grein…..
Hvar eru heimildir fyrir þessu? nú er ég að gera smá ritgerð um þolþjálfun barna og unglinga og þetta eru góðar upplýsingar hjá þér en þær eru bara ekki nægilegar heimildalega séð
Ég studdi við þessar tvær bækur:
NASM Essentials of Personal Fitness Training
og
Keilir ÍAK einkaþjálfari
Gangi þér vel…