ÍAK Einkaþjálfarar hafa lokið námi í einkaþjálfun frá Keili sem byggir á þjálfunarhugmyndafræði sem er einstök á Íslandi. Þekkt er að aðrir þjálfarar noti eitt æfingakerfi fyrir alla sína skjólstæðinga en ÍAK Einkaþjálfarar búa yfir þekkingu til að hanna einstaklingsmiðuð æfingakerfi sem byggð eru á kerfisbundnu mati á stoðkerfi viðskiptavinarins. Niðurstöður sérstakra líkamsstöðu- og hreyfigreininga tryggja að viðskiptavinurinn fær þá styrktar- og liðleikaþjálfun sem best hæfir til að hámarka árangur og lágmarka hættu á meiðslum.
ÍAK Einkaþjálfaranám Keilis er ítarlegasta einkaþjálfaranám sem í boði er á Íslandi. Nemendur útskrifast með yfirgripsmikla þekkingu á sviðum þjálffræði, lífeðlisfræði, næringarfræði, meiðslafræði, uppsetning og hönnun æfingkerfa, þol- og styrktarþjálfun, sálfræði og líkamlegra mælinga. Rík áhersla er lögða á verklega kennslu þar sem námið miðar að því að skila þjálfurum tilbúnum til starfa. Námið spannar tvær annir og er metið til 36 eininga á framhaldsskólastigi.
- Mat á þínu heilsuástandi
- Viðeigandi þjálfun í samræmi við niðurstöður úr líkamsstöðu- og hreyfigreiningum
- Styrktarþjálfun sem hentar þér
- Þolþjálfun sem þjónar þínum markmiðum
- Liðleikaþjálfun til leiðréttingar á líkamsstöðu og veikleikum í hreyfimunstrum
- Meiðslaforvarnir
- Næringarfræði
- Æfinga- og íþróttasálfræði
*Tekið af www.IAKeinkathjalfari.net


Nýleg ummæli