Hvað er ÍAK einkaþjálfari??

26 02 2010

ÍAK Einkaþjálfarar hafa lokið námi í einkaþjálfun frá Keili sem byggir á þjálfunarhugmyndafræði sem er einstök á Íslandi. Þekkt er að aðrir þjálfarar noti eitt æfingakerfi fyrir alla sína skjólstæðinga en ÍAK Einkaþjálfarar búa yfir þekkingu til að hanna einstaklingsmiðuð æfingakerfi sem byggð eru á kerfisbundnu mati á stoðkerfi viðskiptavinarins. Niðurstöður sérstakra líkamsstöðu- og hreyfigreininga tryggja að viðskiptavinurinn fær þá styrktar- og liðleikaþjálfun sem best hæfir til að hámarka árangur og lágmarka hættu á meiðslum.

ÍAK Einkaþjálfaranám Keilis er ítarlegasta einkaþjálfaranám sem í boði er á Íslandi. Nemendur útskrifast með yfirgripsmikla þekkingu á sviðum þjálffræði, lífeðlisfræði, næringarfræði, meiðslafræði, uppsetning og hönnun æfingkerfa, þol- og styrktarþjálfun, sálfræði og líkamlegra mælinga. Rík áhersla er lögða á verklega kennslu þar sem námið miðar að því að skila þjálfurum tilbúnum til starfa. Námið spannar tvær annir og er metið til 36 eininga á framhaldsskólastigi.

Hjá ÍAK Einkaþjálfara getur þú gengið að því vísu að fá áreiðanlegar upplýsingar um:
  • Mat á þínu heilsuástandi
  • Viðeigandi þjálfun í samræmi við niðurstöður úr líkamsstöðu- og hreyfigreiningum
  • Styrktarþjálfun sem hentar þér
  • Þolþjálfun sem þjónar þínum markmiðum
  • Liðleikaþjálfun til leiðréttingar á líkamsstöðu og veikleikum í hreyfimunstrum
  • Meiðslaforvarnir
  • Næringarfræði
  • Æfinga- og íþróttasálfræði

*Tekið af www.IAKeinkathjalfari.net


Actions

Information

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.